aðdragandi
Meginmarkmiðið með molar.is er að koma til móts við
þarfir tveggja ólíkra hópa, annarsvegar einstaklinga og áhugamanna sem vilja
nota póstlista til að ræða áhugamál sín, og hinsvegar markaðsdeilda íslenskra
fyrirtækja.
Fyrri hópurinn hefur sjaldnast aðstöðu eða þekkingu til þess að reka
póstlista, því slíkt krefst bæði tæknikunnáttu og aðstöðu - svo ekki sé
minnst á tímann sem fer í rekstur kerfisins.
Síðari hópurinn hefur lengi viljað nota tölvupóst til þess að dreifa
auglýsingum, en getur það ekki vegna
andstöðu neytenda.
Einnig eru slíkar auglýsingar bannaðar samkvæmt
notkunarskilmálum ISnet, nema
tiltölulega strangar kröfur séu uppfylltar. Nánar tiltekið þarf hver einasti
móttakandi að hafa beðið um auglýsingar frá viðkomandi fyrirtæki, t.d.
með því að sækja um áskrift að póstlistum þess eða ganga í einhvern
"netklúbb".
stefnan
ATH: Þetta er stefnuyfirlýsing, en stefnan verður útfærð í nokkrum
skrefum. Sér í lagi verður ekki byrjað að selja auglýsingar fyrr en
áskrifendur póstlistanna eru orðnir sæmilega margir og smáatriðin (tæknimál,
lagamál) komin á hreint.
Molar.is mun reyna að leysa vandamál þessara tveggja
hópa samtímis með því að bjóða einstaklingum ókeypis rekstur póstlista, gegn
því að áskrifendur þeirra samþykki að taka á móti hóflegu magni auglýsinga.
Auglýsingarnar verða í formi "undirskrifta" sem bætt verður aftan við bréf
póstlistanna (sýnishorn).
Bréfum póstlistanna verður safnað saman og safnið gert aðgengilegt öllum á
vefsíðu. Þetta gefur hópunum sem myndast í kringum póstlistana kleift að
rekja sögu sína aftur í tímann og vísa í gömul bréf og gamlar umræður. Með
tímanum getur þetta orðið athyglisverð heimild um íslenska netmenningu.
Einnig er vonast til að með tilkomu löglegrar leiðar til
að auglýsa með tölvupósti, sem móttakendur eru sáttir við, megi draga úr
íslenskum
ruslpósti.
Til að hámarka nýtingu vinnunnar sem fer í að byggja upp kerfið verður boðið
upp á aðra póstlista-tengda þjonustu, rekstur (gegn gjaldi) á
auglýsinga-snauðum póstlistum og aðra skylda þjónustu. Meirihluti
hugbúnaðarins sem skrifaður verður fyrir molar.is
verður gefinn út á netinu sem frjáls
hugbúnaður, og hagnaður (ef einhver verður) verður m.a. notaður til að
stuðla að aukinni þróun slíks hugbúnaðar.
Síðast en ekki síst vill molar.is ávinna sér traust
og velvild íslenskra netverja (hvort sem þeir eru
skráðir sem slíkir eða ekki).
Því verður lögð áhersla á að vera með rekstur þjónustunnar
eins opna og mögulegt er.