Innihald þessarar síðu gildir frá og með 12. Mars 2000.
skuldbindingar
Molar.is skuldbindur sig til þess að:
- Hvorki selja né dreifa með öðrum hætti netföngum af póstlistum sínum
til óviðkomandi aðila.
- Láta einstaklingum sem þess óska í té afrit af öllum upplýsingum
sem molar.is hefur safnað um þá.
- Afmá allar upplýsingar um einstaklinga sem þess óska úr gagnasöfnum
sínum, að uppsöfnuðum bréfum og öryggisafritum undanskyldum.
- Halda magni auglýsinga innan hóflegra marka - aldrei verða sendar
fleiri en 5 línur (72 stafir í línu) af auglýsingum með hverju bréfi
sem berst á tiltekinn póstlista.
- Tilkynna á vef sínum og þar til gerðum póstlista allar breytingar á
skuldbindingum og skilmálum minnst viku áður en þær eiga sér stað.
- Starfa í fullu samræmi við
notkunarskilmála ISnet.
Athugið einnig notkunarskilmála
molar.is.
skýringar
Umsjónarmenn póstlista og áskrifendur þeirra teljast yfirleitt ekki
óviðkomandi aðilar og eru því gjarnan undanþegnir frá fyrstu
skuldbindingunni. Þetta stafar af því að umsjónarmaður póstlista þarf oft
að vita netföng áskrifenda sinna til að geta sinnt störfum sínum og
móttakendur bréfa hafa yfirleitt rétt á að vita hver skrifaði þau. Augljóst
er að bréf kunna að innihalda netföng og persónueinkenni, og birting þeirra
og dreifing eru alfarið á ábyrgð sendanda.
Þar sem önnur skuldbindingin nær m.a. yfir bréfasafnið, þá áskilur
molar.is sér rétt til að rukka fyrir efniskostnað
og vinnu sem þarf til að svara slíkum fyrirspurnum.
Undantekningarnar í lið 3 stafa af því að það yrði mjög mikil vinna fólgin í
því að fara gegnum stór söfn og eyða bréfum eftir ákveðinn aðila (og það
myndi rýra gagnsemi safnsins), og af því að öryggisafrit eru gjarnan skrifuð
á geisladiska eða aðra miðla sem ómögulegt eða erfitt er að breyta eftirá.
Eins og í fyrsta lið, þá er innihald bréfa sem send eru á opna póstlista
alfarið á ábyrgð sendanda.
Mælt er með því að þeir sem vilja vernda persónuupplýsingar sínar umfram það
sem skuldbindingar 1 og 3 geta tryggt fái sér netfang erlendis, t.d. hjá
póstþjónustu Yahoo.