(none) kde-isl
/ hjálp / listar / skráningar / leita / RSS /
 

Re: Staða þýðingar

From: Pjetur G. Hjaltason (
237595@xyz.molar.is)
Date: Wed 26 Mar 2003 - 01:57:45 GMT

  • Næsta bréf: Arnar Leosson: "Re: Staða þýðingar"

    Sæli félagar

    Þann (þriðjudagur 25. mars 2003 20:23) skrifaði Smári P. McCarthy
    > Sælt verði fólkið.
    >
    > Smári heiti ég og vann eitt sinn að þýðingunum með Bjarna, Loga, Má og þeim
    > öllum. Það voru góðu gömlu dagarnir þegar að vélbúnaðurinn minn réð við KDE
    > og allir voru spenntir fyrir þýðingunum. En nú er staðan breytt. KDE krefst
    > stöðugt meiri og meiri reikniafls og minnis, og Bjarni og Logi eru hvergi
    > sjáanlegir, ná þá heldur Már, Davíð (ég tala jú við hann nánast daglega),
    > Kiddi eða hinir sem voru hvað aktífastir í þessu.

    Þökk sé þeim öllum.

    Eins og í allri (vanþakklátri) sjálfboðavinnu hverfa menn á braut og sinna
    öðru - Koma kannski aftur síðar og leiðbeina þeim sem nú eru fullir áhuga.

    >
    > Auðvitað er þetta SLÆMT mál, svo að ég ofbjóði augum ykkar með
    > hástafalásnum mínum (sem liggur almennt séð ofan í krukku hér við hliðina á
    > mér, en ekki á sínum stað í lyklaborðinu)..
    >
    > Sko. Málið er bara þannig: Við þurfum að Íslenska KDE aftur (þ.e., ná því í
    > skikkanlegt ástand), og við þurfum að gera það hið snarasta. Svo þurfum við
    > að setja upp fallega Linux vél með mjög næs grafísku bootupi, allt
    > optimizeað til helvítis og alles (helst lappi með góðum skjá og fallegri
    > upplausn og allt það), virkilega fínpússað og fallegt... og svo, þegar að
    > það er tilbúið upphlaðið með nýjustu útgáfuna af KDE á Íslensku beint úr
    > bakaraofninum... þá örkum við í stórelfdu liði upp í menntamálaráðuneyti og
    > tíkar-flengjum (svo að ég reyni að Íslenska "bitch-slap" í snarheitum)
    > Tómas Inga Ölrich uns hann játar okkur æðri sér og veitir okkur stóran
    > fallegan fjárstyrk sem að við getum hent inn á bók og notað til þess að
    > fjármagna pizzu- og kókinnkaup öðru hverju (kannski eina helgi á tveggja
    > mánaða fresti eða svo) þegar að við hittumst í einhverju skítsæmilegu
    > húsnæði, rústum öllu og þýðum KDE upp.
    >
    > Hvernig hljómar það svo, herramenn?
    >

    Þetta hljómar allt ágætlega og það þarf sennilega hvorutveggja til, grasrót og
    skipun að ofan til að þetta virki. Það þarf einmitt meira til en endalausar
    ráðstefnur og tal pólitíkusa um hvað þurfi að gera til að vernda tunguna. Þær
    ráðstefnur eru ekki á götunni þar sem hlutirnir gerast. Auðvitað á ríkið að
    ráða nokkra góða tölvumenn til að sjá um og viðhalda íslensku tölvukerfi
    fyrir skóla og skrifstofur. Sjá um þýðingar og búa til dreifingar. Það yrði
    örugglega brot af leyfisgjöldum ríkisins til M$. Þannig væri ungdómurinn
    vaninn við, og kennt á þau kerfi sem þau nota síðar þegar þau koma úr skóla!

    Ég veit ekki til að annarstaðar (nú móðga ég suma) sé möguleiki á að fá
    íslenskað stýrikerfi, uppsetningu (Mandrake og Redhat), póstforrit, vafrara,
    spjallforrit, leiki, ritvinnslu, töflureikna, margmiðlun, prentun... (hvað á
    að halda lengi áfram hér...). Og allt ókeypis.

    En þó hugbúnaðurinn sé ókeypis þá kostar samt tíma og peninga að búa hann til.
    Ég horfi að sumu leyti á það þannig að ég geti lagt svolítið að mörkum í stað
    þess sem hugbúnaðurinn hefur gefið mér (Þetta eru mín leyfisgjöld - að taka
    þátt).

    Kostnaður sem við þurfum samt að borga er t.d bandvídd á neti, tölvur til að
    geyma vefi, og uppsetningar, og eins og fyrr var sagt stundum smá
    fundi/ráðstefnu(kostnað) (og pizza veislur) fyrir þá sem eru að vinna.

    Fyrirtæki sem eru að selja tölvubúnað geta nú lagt þarna eitthvað til
    markanna, því þeirra er hagurinn að get selt sinn vélbúnað og þjónustu við
    þennan íslenska hugbúnað (Halló t.d. HP og IBM)!

    > En þetta byrjar einfallt.
    >
    > Ég er að þýða kabc_*.po úr kdelibs. Þ.e., strax og ég finn út hvernig ég
    > get fengið KBabel til þess að keyra á 450 MHz örgjörva.
    >

    KDE vinnustöðina mína keyri ég á 700Mz afdankaðri vél (ódýrasta súpertilboð
    hjá tölvulistanum á sínum tíma). Er að vísu með 750M minnni (byrjar að
    svappa eftir 3 daga) og ódýrasta gamalt dualhead Matrox kort. Á þessu keyri
    ég 2 skjái upplausn 1600x1200 og 9 sýndarskjái, um 200+ processar í gangi -
    líður bara vel. Ég held að það sé allavega ekki hægt að kaupa svona lélega
    vél lengur :-)

    Safnaði saman 366Mz prosessor og 256M minni handa litla stráknum mínum (6 ára)
    Keypti kassa, og Mandrake 9/KDE 3.1 keyrir fínt. Þar fann ég enn ódýrara
    eldgamalt Matrox (ekki dual) sem bætti þó meira en hraði örgjörva.

    Að hafa kerfi á íslensku fyrir hann gerir gæfumuninn, hann er vel læs og getur
    sent tölvupóst og flakkað á netinu, skilur leikina, og getur prentað út,...!

    Auðvitað á þetta að vera þannig!

    >
    > (btw, Debian er yndislegt. Compileaðu KDE sjálfur. Pís Andri. ;-)

    Og svo kvartar þú með 450Mz :-)

    Kveðja, Pjetur



  •