(none) kde-isl
/ hjálp / listar / skráningar / leita / RSS /
 

Re: Re: kdat

From: Erlendur S Thorsteinsson (
47541@xyz.molar.is)
Date: Fös 26 Feb 1999 - 15:52:35 UTC


Hrafnkell Eiriksson wrote:
>
> On 25. febrúar 1999, Erlendur S Þorsteinsson wrote:
> > Nákvæmlega sama röksemdarfærsla og þú notar hérna að ofan gerir út af við
> > "ofurpaur".
>
> Alls ekki.

Jú víst. Á sama hátt og fólk er vant að nota orðið "spóla" yfir ýmiskonar
snældufyrirbæri þá er það vant _neikvæðri_ merkingu í orðinu "paur".
Óformleg könnun mín sýndi að það var það eina sem fólki datt í hug.

"Bjarni R. Einarsson" wrote:
>
> Mér persónulega finnst ekki skrítið að þýða sjaldgæf/framandi hugtök með
> óvenjulegum orðum. Ofurpaur skilst (vonandi?) ágætlega í því samhengi sem
> það er notað - samhengislausa könnunin þín hrakti það ekki, heldur sýndi að
> menn einmitt fengu á tilfinningunni að þetta væri einhver "valdameiri"
> einstaklingur sem gæti gert töluverðan skandal ef ekki væri haft hemil á
> honum.

Hún var ekki samhengislaus, ég sagði þeim sem ég spurði að þetta væri
einhver sem ynni við tölvur, starfsheiti eða hlutverk, og enginn skildi hvað
það gæti verið. Auk þess fannst því ekki að "þetta væri einhver
"valdameiri" einstaklingur sem gæti gert töluverðan skandal" heldur einhver
valdameiri einstaklingur sem MYNDI gera töluverðan skandal ef ekki væri
hafður hemill á honum.

Þetta orð, "ofurpaur", er því bæði neikvætt að grunni og ekki gegnsætt í
merkingu.

Gudmundur Erlingsson wrote:
>
> root = rót
> superuser = ofurpaur
> system administrator (sysadmin) = kerfisstjóri
>
> "Ofurpaur" er því strangt til tekið ekki þýðing á "root" eða "sysadmin",
> þó þessi hugtök séu náskyld, heldur þýðing á "superuser".

Hvað með "æðri notandi", "æðsti notandi", "hánotandi", "yfirnotandi",
"ofurnotandi", (fleiri hugmyndir, einhver?)

You become superuser by logging in as 'root',
                          to perform the duties of sysadmin.

Þú gerist "æðri notandi" með því að skrá þig inn sem 'rót',
                          til að sinna störfum "kerfisstjóra".

Þú gerist "æðsti notandi" með því að skrá þig inn sem 'rót',
                          til að sinna störfum "kerfisstjóra".

Þú gerist "hánotandi" með því að skrá þig inn sem 'rót',
                          til að sinna störfum "kerfisstjóra".

Þú gerist "ofurnotandi" með því að skrá þig inn sem 'rót',
                          til að sinna störfum "kerfisstjóra".

Þú gerist "yfirnotandi" með því að skrá þig inn sem 'rót',
                          til að sinna störfum "kerfisstjóra".

Mér líst best á "æðri notandi", þá ljóst að til eru venjulegir notendur og
æðri notendur, einnig er ljóst að "æðri notendur" eru einungis að nota
kerfið eins og við hin en hafa samt einhver meiri réttindi og skyldur. En
þeir ætla ekki að skemma það fái þeir tækifæri til (eins og einhvers
bannsettur paur myndi eflaust gera).

/esþ

-- 
Erlendur Smári Þorsteinsson / Erlendur Smari Thorsteinsson
<esth_hjá_cmu_punktur_edu> / <esth_at_cmu_dot_edu>