|
SV: RE: [gutti ]: Nostalg Ä·ukast
From: Ólafur Guðlaugsson (94449@xyz.molar.is)
Date: Tue 19 Jan 2010 - 11:10:01 GMT
Næsta bréf: Skúli Skúlason: "Spurning til Einars"
með millikassa, ekki gleyma honum
________________________________________
Frá: Grettir Sigurdarson [94482@xyz.molar.is]
Sent: 18. janúar 2010 19:13
Viðtakandi: 94522@xyz.molar.is; 94559@xyz.molar.is
Afrit: gutti@molar.is
Efni: [gutti]: RE: [gutti ]: Nostalg Ä·ukast
Hmmmm. Ég keypti mér bara heilann "jeppa" frá útlöndum, þá var dollarinn BARA 59 iskr.
Those where the days, my friend. !!!!! (thought it would never end) sbr. texti í lagi.
> Subject: Re: [gutti]: NostalgÄ·ukast
> Date: Fri, 15 Jan 2010 12:50:29 +0000
> From: 94522@xyz.molar.is
> To: 94559@xyz.molar.is
> CC: gutti@molar.is
>
> Já þetta voru góðir tímar. Ertu til í að lána mér spóluna? Gengisvísitalan
> 131,3 stig, ef maður horfir nógu oft á þetta gæti maður kannski öðlast kjark
> til að kaupa eitthvað skemmtilegt í jeppann frá útlöndum.
> Kv - Skúli
>
> 2010/1/15 Bessi A?alsteinsson <94559@xyz.molar.is>
>
> >
> > Við Sigrún ákváðum að fara í bíó í gærkveldi enda rak hvern
> > eðalþáttinn eftir annan frá Kanaanslandi í dagskrá sjónvarpsins. Því
> > miður reyndist uppselt á Avatar þannig að við hrökkluðumst heim aftur
> > og ég hófst handa við tiltekt á upptökutæki einu ágætu sem þar er. Ein
> > upptakan var frá 5. mars og nærri fjórir klukkutímar. Sem ég
> > hraðspólaði í gegnum efnið birtust allt í einu tíufréttir sjónvarpsins
> > og það var þar sem nostalgían bar mig ofurliði. Síðast í fréttatímanum
> > las Bogi dimmum rómi Viðskiptafréttir:
> > "Viðskipti í Kauphöll Íslands námu tæpum 20 milljörðum króna í dag,
> > úrvalsvísitalan hækkaði um 0,69% og er nú 4.850 stig ..."
> > Á skiltum með fréttinni var þetta:
> > "Heildarviðskipti 19.887 millj. kr.
> > Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,69%
> > Úrvalsvísitalan 4.850 stig
> > Dow Jones 12.255 stig, upp um 0,3%
> > NASDAQ 2.273 stig, upp um 0,6%
> > FTSE 5.854 stig, upp um 1,5%
> > Krónan styrktist um 0,15% og gengisvísitalan er 131,3 stig, gengi
> > Bandaríkjadals er tæplega 66 kr., evru tæplega 101 og sterlingspundið
> > er á 132 krónur."
> > Þetta reyndist sem sagt vera 5. mars 2008.
> > Eru ekki örugglega fleiri en ég sem sakna þessara dásamlegu frétta?
> > Kv. Bessi
> >
> > Attachments:
> >
> >
>
>
> Attachments:
>
Attachments:
| |