|
RE: Langdrægt GSM
From: Johann Kristjansson (79401@xyz.molar.is)
Date: Tue 23 Sep 2008 - 11:18:20 GMT
Næsta bréf: Skúli Skúlason: "Re: Langdrægt GSM"
Sælir drengir.
Eftir því sem best er vitað þá eru afar fáir símar enn samhæfðir við langdrægt 3G.
Hjá Hátækni eru 2 til, þ.e. Nokia N78 og svo 6210Navigator.
Enginn annar er sagður virka með þessu nýja kerfi.
Rétt er hjá Einari að flestir nota 2100MHz fyrir 3G (skammdrægt og ómögulegt fyrir fjöll) en samkvæmt óljósum fregnum er langdræga
3G kerfið á 900MHz.
Þetta hef ég ekki geta staðfest enda alltaf á tali í þjónustuveri Símans eða starfsfólk á fundi!
Svo, ég held að menn ættu bara að bíða rólegir ef mögulegt er.
Kveðja
Issi
> Subject: Re: [gutti]: Langdrægt GSM
> Date: Tue, 23 Sep 2008 10:38:28 +0000
> From: 79440@xyz.molar.is
> To: gutti@molar.is
>
> Sæll Bessi
>
> Eins og er dugir venjulegur gemsi. Það er kostur ef hægt er að tengja við
> hann loftnet, eitthverjir sony símar eru með slíku.
>
> Síminn segist ætla að koma upp langdrægu 3G kerfi á 900 MHz, ég
> er ekki sannfærður um að það muni draga betur en GSM, reynslan
> mun skera úr um það. Ég held að það séu komnir örfáir símar á markaðinn
> sem eru með 3G á 900 Mhz, flestir 3G símar nýta bara 2100 MHz, sem
> dregur mjög skammt.
>
> Þann 2008-09-23, 10:25:07 (+0000) skrifaði Bessi Aðalsteinsson:
> > Sælir piltar.
> >
> > Ég verð að fara að endurnýja gemsann minn og þarf að vita hvernig
> > síma er best að kaupa. NMT dettur út í vetur og langdrægt GSM
> > kerfi á að taka við. Mér er alls ekki ljóst hvort venjulegur gemsi
> > dugir eða hvort hann verður að vera 3G. Er einhver alminlega inni
> > í þessu?
> >
> > --
> > Kv. Bessi
> >
> >
>
> --
>
> Einar Kjartansson 79440@xyz.molar.is
> Símar : 690 3307 (gsm) 588 6407 (heima)
> 522 6177 (vinna) 853 7588 (nmt)
>
>
_________________________________________________________________
Discover the new Windows Vista
http://search.msn.com/results.aspx?q=windows+vista&mkt=en-US&form=QBRE
Attachments:
| |