|
Útreikningur á Guinness froðu
From: Dagur Bragason (71000@xyz.molar.is)
Date: Wed 25 Apr 2007 - 19:17:16 GMT
Næsta bréf: Skúli H. Skúlason: "Re: Útreikningur á Guinness froðu"
Í netmogganum í dag er þetta að finna:
http://www.mbl.is/mm/greinilegur/frett/1266408/
Nú er að mœta neð reiknistokkinn og vasatölvuna á næsta Guinness og staðfesta eða fella þessar kenningar.
Kveðja Dagur
Bjórgátan mikla leyst
Hvers vegna hjaðnar froðan á ljósum bjór hraðar en á dökkum? Tveir virtir vísindamenn greina frá því í breska vísindatímaritinu Nature að þeir hafi sett saman jöfnu til að lýsa bjórfroðu.
Hún er samsett úr örsmáum loftbólum og lögun þeirra hefur áhrif á hversu hratt þær hreyfast. Því hraðar sem þær hreyfast, því fyrr springa þær og froðan hjaðnar.
Robert MacPherson, stærðfræðingur við rannsóknastofnun við Princeton-háskóla í New Jersey, og David Srolovitz, eðlisfræðingur við Yeshiva-háskóla í New York, hafa búið til jöfnu til að reikna út hreyfingar bólanna.
Eru rannsóknir þeirra byggðar á rannsóknum tölvunarfræðifrumherjans John von Neumann, sem setti saman jöfnu árið 1952.
Útreikningum á bjórfroðuatferli svipar til kornanna málmum og leir, þannig að jafna MacPhersons og Srolovitz ætti að nýtast víðar en til að leysa hina aldagömlu bjórgátu.
| |