(none) gutti
/ hjálp / listar / skráningar / leita / RSS /
 

Fwd: Ferðafréttir

From: Skúli H. Skúlason (
skulihs@internet.is)
Date: Mon 26 Mar 2007 - 15:44:46 GMT

  • Næsta bréf: Bessi Aðalsteinsson: "Týsdax"

    (Póstkerfi Gutta hafnaði þessari viðbót við ferðafréttirmar, reyni því aftir)

    Sælir
    Sé að Dagur hefur staðið fréttavaktina vel og tekið völdin í stjórnstöðinni,
    enda leiðtoginn væntanlega verið upptekinn við fermingarkyrtla og brauðtertuát.
    Það má bæta við að það er ekki sjálfgefið að allt gangi vandræðalaust þegar
    komið er á malbik, enda vill það loða við góða fjallabíla að hafa malbiksóþol.
     Þannig var að nánast um leið og hjólbarðar Hrollsins snertu malbik austan
    Kárahnjúkastíflu fór hann að sporna við og millikassinn gaf sig. Hann fór því
    til byggða í taumi. Eftir nokkra keyrslu á malbikinu tók svo eitt dekkið undir
    Breska heimsveldinu upp á því að leysa vind og bættum við í dekkið tvisvar á
    leiðinni. Þegar við skoðuðum dekkið nánar á Egilsstöðum kom í ljós gúlpur á
    því (sennilega ekki orsök heldur afleiðing) og ekki árennilegt að fara að bruna
    eftir malbikinu með þetta undir. Gummi var svo forsjáll að hafa tekið dekk með
    sem ég fékk undir þann breska og gekk vel heim á því.
    Fínn túr, flott veður, yfirleitt bjart og flott. Fór að blása hressilega um að
    leiti sem við vorum að detta inn í Kverkfjöllum og var eiginlega ekki stætt.
     Rokið var ennþá í gærmorgun en kannski eitthvað minna, en ekki mikið fjúk,
    bara hvasst.
    Ein saga í lokin af Landrovernum. Rétt eftir komu í Kverkfjöll fór ég út í bíl
    til að ná í farangur og drepa á og slíkt. Þegar ég kom út var Landinn hins
    vegar horfinn. Kom í ljós við nánari skoðun að hann hafði skroppið á kamarinn,
    en gamli kamarinn stendur neðan við bílastæðið. Hann hitti að vísu ekki alveg
    á kamarinn en parkeraði snyrtilega við hliðina á honum.
    Takk fyrir túrinn félagar - Skúli

    Attachments:
     + http://www.molar.is/listar/gutti/22/3a/4607ea8b/01.unnamed



  •