(none) gutti
/ hjálp / listar / skráningar / leita / RSS /
 

RE: Vatnajökull 2007

From: Ólafur Guðlaugsson (
65743@xyz.molar.is)
Date: Tue 06 Mar 2007 - 10:54:37 GMT

  • Næsta bréf: Thrandur Arnthorsson: "RE: Vatnajökull 2007"

    Ég mæti ásamt Jens Þór(kóari)

    Kv Óli G

    -----Original Message-----
    From: Sigurjón Sindrason [mailto:65843@xyz.molar.is]
    Sent: 5. mars 2007 22:20
    To: Skúli H. Skúlason; gutti@molar.is; 65776@xyz.molar.is
    Subject: SV: [gutti]: Vatnajökull 2007

    Sindri bróðir Sigurjóns, kóari Yngvi Sindrason... næstum allt slektið

    ________________________________________
    Frá: Skúli H. Skúlason [65880@xyz.molar.is]
    Sent: 5. mars 2007 21:05
    Viðtakandi: gutti@molar.is; 65776@xyz.molar.is
    Efni: [gutti]: Vatnajökull 2007

    Sælir félagar.
    Mér var úthlutað því verkefni að halda utan um þátttöku í Grímsvatnaferðinni.
     Þeir sem ætla að fara þurfa því að melda sig inn og kóarann sinn.

    Planið er brottför að morgni föstudagsins 23. mars (kaffibolli á Lelect kl.
    8.30, brottför af stæði kl. 9.00) og ekið á Grímsfjall. Kl. 17.23 er Guinnessfundur (vonandi á Grímsfjalli). Síðan er farið snemma í háttinn föstudag og ræs vel snemma á laugardag til að eiga langan og góðan dag á jöklinum. Ef veðuraðstæður segja okkur ekki eitthvað annað er stefnan tekin á Kverkfjöll, hugsanlega með skreppi niður Löngufönn og jafnvel bað í Hveragilinu. Einhverjir að vísu búnir að baða sig þar en allavega það langt síðan ég gerði það að ég er orðinn skítugur aftur. Svo heim á sunnudag (persónulega rek ég þó þann varnagla gagnvart vinnu og spúsu að það geti þess vegna verið á mánudag, bara svona að fenginni reynslu).

    Þeir sem ég man eftir í fljótu bragði:
    Skúli, kóari Hannes Snorri
    Óli, kóari ?
    Sigurjón, kóari Birgir
    Einar Kj, kóari +
    Bessi, kóari Páll
    Dagur (Bragur Dagason), kóari ?
    Gummi Braga, kóari ?
    Kvistur ??

    Sendið mér allar viðbætur og staðfestingar. Eins getið þið bætt netföngum kóaranna við hérna.

    Kv - Skúli



  •