Næsta bréf: Bessi Adalsteinsson: "Re: Sumarferð"
Sælir félagar..Önnur hugmynd.
Dagur 1 Jökulheimar-Vonarskarð-Gæsavatnaskáli
Dagur 2 Gæsavatnaskáli- Hveragil- Sigurðarskáli
Dagur 3 Sigurðarskáli- Bessalaug-Kárahnjúkar
Dagur 4 Heimferð
Kveðja Guðmundur
Akralind 2 201 Kopavogur Iceland
Tel: +354 555 6444 Fax: + 354 565 7230
-----Original Message-----
From: Birgir Sigurðsson [mailto:58093@xyz.molar.is]
Sent: 18. apríl 2006 12:35
To: gutti@molar.is
Subject: RE: RE: [gutti]: Sumarferð
Sælir,
Þegar ég var að skoða almanakið í vetur sá ég að sumardagurinn fyrsti kemur
strax á eftir páskunum þetta árið. Hugsaði ég með mér að þá væruð þið
nýkomnir úr páskatúr, en ég í hefðbundinni fjölskylduferð í Eyjafirðinum og
yrði að finna aðra leið til að komast á fjöll, sé þó nú að þetta voru óþarfa
áhyggjur. Því bókaði ég mig í Útivistarferð, planið er spennandi, gist í
Jökulheimum, Grímsfjalli, Sigurðarskála og loks Snæfelli en í svo langri
ferð gæti nú e-ð verið farið að riðlast þegar kemur að fjórðu nóttinni.
Páskaferðin var annars mjög fín og veðrið betra en ætla mætti í norðanátt,
a.m.k. truflaði það aldrei skíðaiðkun. Markverðust var ferð með snjótroðara
uppá topp á Kaldbak, það var í logni og heiðríkju á föstudaginn langa og
útsýnið óviðjafnanlegt. Skíðaleiðin niður er tæpra 1200 metra fallhæð.
Það er mikill vetur enn þarna fyrir norðan og fyrir vestan líka, ef ekki
verða snögg skipti er alveg möguleiki að taka annan túr strákar !
1. maí er á mánudegi og því aftur löng helgi ef menn verða ekki enn saddir.
Kveðja,
Birgir
-----Original Message-----
From: Einar Kjartansson [mailto:58125@xyz.molar.is]
Sent: 18. apríl 2006 08:24
To: gutti@molar.is
Subject: Re: RE: [gutti]: Sumarferð
Sælir
Mér finnst það afsakplega að freistandi að taka góða sumarferð.
Það eru orðin ansi mörg ár síðan það hefur verið krapalaust á hálendinu á
þessum árstíma. Snjódýptar mælinn við Setrið sýnir 115 sm, ég man ekki til
þess að hann hafi sýnt svo mikið áður.
Það lítur mjög vel út með veður á fimmtudag en líklega veður eitthver
snjókoma hina dagana, sunnan átt á föstudag, án þess að það hvessi eða hlýni
verulega.
Þessi veðurspá passar ágætlega fyrir 3 laugaferð, eða baðferð í Hveragil.
Í 3 laugaferðinni þá var gist í Hveravöllum fyrri nóttina en í Laugafelli þá
seinni.
Ég þarf að vera kominn í bæinn fyrir 15:00 á sunnudag.
Þann 2006-04-17, 18:56:54 (-0000) skrifaði Dagur Bragason:
>
> Fór í snjólagakönnunarferð Klakksleiðina í Setur, við annann bíl (Langa
> dráttarvélin og Rauður)
> Lítill sjór var í uppsveitum á Hrunamannaleið, en þegar við áttum um 15-20
> km í Setur, fór að bæta í snjóalög. Seinustu 10-15 km í setur var
> kúludráttur og þungt færi.
> Gisti í Setri og voru nokkrir félar þar og þeir sem komu frá
Kerlingafjöllum
> sögðu frá miklum snjó og þungu færi. Færið á Sóleyjarhöfða var þungt nærri
> Setri en léttist þegar austar dró.
> Fór í gær sunnudag yfir sóleyjarhöfða vað og var blindbilur fyrstu 5km og
> þungt færi en léttist verulega þegar kom austar og hvíslaveituvegur nánast
> auður.
> Fór fljótlega af hvíslaveituvegi og suður Búðarhálsinn og var létt færi og
> nokkur snjóþekja, en engin för sá ég á þeirri leið.
>
> Tel ég nægann snjó á hálendinu fyrir 3-lauga-ferð.
>
> Kveðja Dagur
>
>
>
>
>
>
--
Einar Kjartansson 58125@xyz.molar.is
Símar : 690 3307 (gsm) 588 6407 (heima)
575 2062 (vinna) 853 7588 (nmt)