| |
Re: Sumarferð
From: Skúli H. Skúlason (skulihs@internet.is)
Date: Mon 10 Apr 2006 - 17:05:03 GMT
Næsta bréf: Dagur Bragason: "RE: Sumarferð"
Ég heyrði í dag að það sé fullt af snjó þarna norð-austur frá og jaxlar að
austan hafi verið að snúa frá þar sem færið sé drulluþungt.
Birgir og Óli eru væntanlega að fara í bað þarna sumardaginn fyrsta og þá undir
öruggri leiðsögn fararstjóra Útivistar. Þeir eru sennilega búnir að gefast upp
á að komast þangað í ykkar félagsskap strákar mínir.
Kv - Skúli
On Mon, 10 Apr 2006 16:15:32 +0000
Bessi Adalsteinsson <57103@xyz.molar.is> wrote:
> Mér finnst menn vera orðnir kærulausir. Birgir er kominn í einhvern
> leikaraskap á sumardekkjunum og enginn áhugi virðist á að nota langa
> helgi til þess að komast í bað. Það er komið á annan mánuð síðan við
> vorum í gufu á Grímsfjalli og ég amk. þarf á útvortis hreinsun að
> halda. Er ekki kominn snjór á leiðina í Hveragil?
>
>
> Einar Kjartansson wrote:
> > Ég man ekki til að slíkt hafi verið rætt. En það lítur út fyrir að ég fari
> til Akureyrar á
> > Föstudaginn langa og til baka á páskadag eða annan í páskum. Ég vil helst
> fara eitthverjar
> > aðrar leiðir en hringveginn, ef svipað er á statt hjá öðrum, þá vildi ég
> gjarna fétta af því.
> >
> > Þann 2006-04-10, 15:42:44 (+0000) skrifaði Bessi Adalsteinsson:
> >> Sælir.
> >>
> >> Þar sem ég missti af föstudaxfundi síðast: eru einhver ferðaplön um
> >> aðra helgi, þ.e.a.s. sumardaginn fyrsta og áfram?
> >>
> >
>
> --
> Kv. Bessi
>
>
| |