RE: Jöklaferð
From: Hedinn: olafur gudlaugsson (13065@xyz.molar.is)
Date: Mon 30 Dec 2002 - 10:05:12 GMT
Fór í Landmannahellirinn um helgina.
Frábært útsýni til fjallatinda en lítill snjór, 2 Barg færi (30 pund)
Varðandi næstu helgi er hún væntanlega upptekin.
Óli Guðl
-----Original Message-----
From: Skúli H. Skúlason [mailto:13098@xyz.molar.is]
Sent: 30. desember 2002 09:57
To: VSO: Haukur Hlidkvist omarsson; Einar Kjartansson; gutti@molar.is
Subject: RE: [gutti]: Jöklaferð
Við Grettir erum víst dæmdir til að fara á eitthvað fyllerí með eiginkonunum
þessa helgi, s.s. stutt í keðjunni 4.-5. En eftir að hafa heyrt og séð
ferðasögur af Langjökli núna um helgina verður maður að fara eitthvað og það
eins fljótt og auðið er.
-----Original Message-----
From: VSO: Haukur Hlidkvist omarsson [mailto:13128@xyz.molar.is]
Sent: 30. desember 2002 09:47
To: Einar Kjartansson; gutti@molar.is
Subject: RE: [gutti]: Jöklaferð
Sælir
Ég og nafni fórum á Langjökul á laugardaginn. Frábært veður, frekar þungt
færi en hægt að halda ágætum hraða.
Því miður kemst ég ekki næstu helgi en allar aðrar helgar eru lausar hjá
mér, amk svo ég best viti.
Nafni ætlaði að biðja Skúla um að smella inn á Kára myndum úr ferðinni.
kveðja
Kvistur
-----Original Message-----
From: Einar Kjartansson [mailto:13158@xyz.molar.is]
Sent: 30. desember 2002 09:34
To: gutti@molar.is
Subject: [gutti]: Jöklaferð
Sælir.
Hvernig líst mönnum á að fara á jökul um næstu helgi, 4-5 jan ?
Það lítur vel út með veðurhorfur:
Á laugardag og sunnudag:
Austlæg eða breytileg átt, él við ströndina
sunnan- og austantil, en annars víða bjart veður. Kalt í veðri.
Nú þarf líklega að fara á jökul til að komast í almennilegan snjó,
þó það sé eitthver snjóföl víða. Það er ekki spáð verulegri úrkomu næstu
daga.
Tveir möguleikar sem m.a. koma til greina eru að fara í Setur og kíkja á
Hofsjökul eða að taka stefnuna á Grímsfjall. Til að fá meiri dagsbirtu
á Jökli væri hægt að leggja af stað eftir vinnu á föstudegin.
Á vef 4x4 eru fréttir og myndir af góðum snjó og færi á Langjökli og
Vatnajökli.
Hvað finnst ykkur?
Þessi póstur var sendur á póstlistann gutti@molar.is
--
Einar Kjartansson 13158@xyz.molar.is
Símar : 690-3307 og 588-6407
|