(none) gutti
/ hjálp / listar / skráningar / leita / RSS /
 

RE: Jöklaferð

From: VSO: Haukur Hlidkvist omarsson (
12909@xyz.molar.is)
Date: Mon 30 Dec 2002 - 09:46:57 GMT

  • Næsta bréf: Skúli H. Skúlason: "RE: Jöklaferð"

    Sælir

    Ég og nafni fórum á Langjökul á laugardaginn. Frábært veður, frekar þungt færi en hægt að halda ágætum hraða.
    Því miður kemst ég ekki næstu helgi en allar aðrar helgar eru lausar hjá mér, amk svo ég best viti.
    Nafni ætlaði að biðja Skúla um að smella inn á Kára myndum úr ferðinni.
    kveðja
    Kvistur

    -----Original Message-----
    From: Einar Kjartansson [mailto:12939@xyz.molar.is]
    Sent: 30. desember 2002 09:34
    To: gutti@molar.is
    Subject: [gutti]: Jöklaferð

    Sælir.

    Hvernig líst mönnum á að fara á jökul um næstu helgi, 4-5 jan ?
    Það lítur vel út með veðurhorfur:

         Á laugardag og sunnudag:
               Austlæg eða breytileg átt, él við ströndina
               sunnan- og austantil, en annars víða bjart veður. Kalt í veðri.

    Nú þarf líklega að fara á jökul til að komast í almennilegan snjó,
    þó það sé eitthver snjóföl víða. Það er ekki spáð verulegri úrkomu næstu
    daga.

    Tveir möguleikar sem m.a. koma til greina eru að fara í Setur og kíkja á
    Hofsjökul eða að taka stefnuna á Grímsfjall. Til að fá meiri dagsbirtu
    á Jökli væri hægt að leggja af stað eftir vinnu á föstudegin.
    Á vef 4x4 eru fréttir og myndir af góðum snjó og færi á Langjökli og
    Vatnajökli.

    Hvað finnst ykkur?

    Þessi póstur var sendur á póstlistann gutti@molar.is

    -- 
    

    Einar Kjartansson 12939@xyz.molar.is Símar : 690-3307 og 588-6407



  •