|
Fjallabak
From: Einar Kjartansson (08758@xyz.molar.is)
Date: Thu 21 Feb 2002 - 10:22:13 UTC
Næsta bréf: Einar Kjartansson: "skálagjöld og eldsneyti"
Sælir
Nú stendur til að fara á fjöll um helgina. Veðurspáin er svona:
Suðurland:
Suðvestlæg eða breytileg átt, 5-10 og snjókoma eða él í dag, hvassast
með ströndinni. Norðaustan 8-13 og rofar til í nótt. Norðaustan 13-18 og
skýjað með köflum og úrkomulítið á morgun. Hiti kringum frostmark í dag,
en frost 1 til 6 stig á morgun.
Miðhálendið:
Austan 10-15 norðantil, en vestlæg eða breytileg átt, 5-8 sunnantil í dag.
Norðaustan 15-20 í nótt og á morgun. Snjókoma og skafrenningur og
frost 3 til 8 stig, en kólnandi veður á morgun.
Á laugardag og sunnudag: Norðan 10-15 og éljagangur norðantil, en
skýjað með köflum sunnantil. Talsvert frost.
Miðað við þetta er Fjallbakssvæðið vænlegt. Fjallavinafélagið Kári
er búið að bóka pláss í Hvanngili. Ef veður er hagstætt þá skálinn
í Hrafntinnuskeri ennþá betri en Hvanngil því þar er jarðhiti notaður
til upphitunar.
Miðað er við að leggja af stað á Laugardagsmorgun (hvar? hve snemma?)
Hvað segja menn?
Gutti: gutti@molar.is og http://www.molar.is/listar/gutti/2002-02/
Káraspjall: http://pub42.bravenet.com/forum/show.php?usernum=3529971982
--
Einar Kjartansson 08758@xyz.molar.is
Símar : 690-3307, 588-6407 (heima),
525-0535 (vinna) 853-7588 (bíll).
| |