|
Landmannalaugar
From: Einar Kjartansson (05826@xyz.molar.is)
Date: Wed 28 Nov 2001 - 09:15:42 UTC
Næsta bréf: Hedinn: olafur gudlaugsson: "FW: Landmannalaugar"
Sælir.
Hvernig líst ykkur á að fara í Landmannalaugar um næstu helgi?
Langtímaspáin veriðist vera þokkaleg:
Á föstudag og laugardag: Suðlæg átt, 8-13
m/s og víða él, en úrkomulítið á Norðurlandi.
Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en frostlaust við
austurströndina.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Norðlæg eða breytileg átt með slyddu eða
éljum og fremur svölu veðri.
Ég skrapp á sunnudaginn rétt upp fyrir Sandskeið til að máta snjóinn.
það var meiri snjór en ég bjóst við, ég þurfti að hleypa úr niður fyrir 3
pund til að komast eftir vegum sem liggja að málarnámum fyrir sunnan
Vífilsfell.
Þetta er sent á "gutti@molar.is".
Það er ekki hægt að senda viðhengi á þennan póstlista en ef menn hafa
t.d. myndir eða kort sem þeir vilja deila með öðrum, þá má senda slíkt
til mín, ég set það þá vefinn undir:
http://klaki.net/gutti/
Það er hægt að skrá sig af eða á póstlistann á slóðinni:
http://www.molar.is/listar/gutti/
--
Einar Kjartansson 05826@xyz.molar.is
Símar : 690-3307, 588-6407 (heima),
525-0535 (vinna) 853-7588 (bíll).
| |