Molar.is hefur það sem
sitt fyrsta markmið að veita
almenningi opna, ókeypis póstlistaþjónustu. Hér getur
þú stofnað póstlista
um hvað sem er og rætt málin við vini þína, kunningja eða
almenning.
05-11-2001: Pillu-áminningar þjónusta hefur
bæst í hóp þeirra þjónusta sem hýstar eru undir Molar.is léninu.
Einnig hefur verið lokað (tímabundið) fyrir skráningar nýrra póstlista,
vegna tímaskorts hjá umsjónarmanni - þegar tími gefst verður kerfið
tekið í gegn, gert sjálfvirkara og opnað aftur.
22-04-2001:
Nýjung: rss.molar.is hefur nú verið
opnað, en þar eru að finna tól sem gera mönnum kleyft að birta
fyrirsagnir ýmissa innlendra og erlendra fréttamiðla á heimasíðum sínum.
Það stendur til að gera fyrirsagnir póstlistanna hér aðgengilega gegnum
þetta viðmót á næstu vikum eða mánuðum.