Molar.is: Ókeypis póstlistaþjónusta
Póstlistar eru þægileg leið til að halda uppi samræðum á tölvupóstformi
við marga aðila samtímis. Kosturinn við að nota póstlistakerfi í staðinn
fyrir að halda utan um eiginn netfangalista, er að listakerfið gefur hópnum
eitt sameigilnegt, auðmunað netfang, heldur utan um bréfasafn á vefnum og
gerir áskrifendum kleyft að breyta netföngum sínum og stillingum sjálft, í
staðinn fyrir að leita á náðir umsjónarmannsins.
Póstlistaþjónusta Mola hýsir m.a. partalistann, sem er
lang-öflugasti vettvangur íslendinga sem vilja kaupa eða selja notaðan
tölvubúnað. (Ég státa mig af og til af því að partalistinn hafi gert út af
við tölvudálk smáauglýsinga DV...)
RSS.molar.is: RSS fréttaþjónustan
RSS fréttaþjónustan útvegar einstaklingum og vefstjórum verkfæri til að
birta saman á lista fyrirsagnir af ýmsum net-fréttamiðlum, þar á meðal
fyrirsagnir Morgunblaðsins og
Textavarpsins, auk fjölmargra smærri
miðla og einstaklingssíðna. Listar af þessu tagi eru án efa meðal þægilegustu
leiða til að fylgjast með fréttum á Netinu í dag.
Fyrirsagnalistinn hér til hægri er birtur með RSS tólunum.
P.molar.is: Pilluáminning í SMS
Flestir kannast við stressið sem fylgir því þegar stelpur gleyma af e-m
ástæðum að taka getnaðarvarnarpilluna sína. Pilluáminningin sendir stelpum
SMS einusinni á dag til að reyna að minnka þetta vandamál.
|