Next message: Kristofer Sigurdsson: "Re: Fyrirhyggja - Grafík"
-----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE-----
Hash: SHA1
Kristofer Sigurdsson <05138@xyz.molar.is> wrote:
> Jahh, eins og ég hafði heyrt eða myndað mér skoðun á yrði þetta UNIX
> kerfi - en þess má raunar til gamans geta að BeOS er það í rauninni,
> svo og MacOS X (jafnvel enn fremur). DOS...jahh...erum við ekki
> sammála um að það sé dautt, og það fari því bara vel? ;)
POSIX != Unix. BeOS er POSIX samhæft. MacOS X styðst við BSD kóða að
verulegu leyti, að viðbættum slatta úr NeXT.
Þess má geta að hvorugt kerfið er UNIX® kerfi. Linux er það ekki heldur.
Að auki verð ég að segja að ég er ekki sammála því að DOS sé "best komið
dautt". Það er ágætt kerfi á þær vélar sem það var hannað á. (MS-DOS er
ekki *eina* DOS kerfið. ;)
> Hvað nákvæmlega áttu við hér? Viltu nota kerfið hans Goslings? Eða
> eitthvað annað af þessum skrilljón propriatery gluggakerfum? Eða
> viltu skrifa nýtt?
Nýtt. Kerfi Goslings er a.) lokað og í eigu Sun, b.) gersamlega
steindautt. Og ef þú vilt nota proprietary gluggakerfi ætla ég ekki að
banna þér það ... því ég ætla að vona að við verðum ekki svo klaufskir
að byggja *neitt* af þessu tagi of þétt inn í kerfið...
> Þú talar um að halda samhæfni við X11 (eða arftaka þess), en vilt
> samt gera hlutina allt öðruvísi en þeir. Hvernig þá? Með einhverju
> compatibilty layer eins og MacOS X græjar samhæfni við eldri MacOS
> forrit (hægvirkt og ónýtt)?
X er protocol. Útfærsla á því er algjörlega í höndum þess sem smíðar þá
útfærslu.
> Hmm, síðast þegar ég vissi var nákvæmlega *ekkert* vandamál að nota
> Postscript í opnu umhverfi, það þarf ekki einu sinni að finna upp
> hjólið, láta gluggakerfið bara nota Ghostscript.
Allir renderar sem nota Ghostscript styðjast við X server. Við myndum
þurfa að skrifa okkar eigin render kerfi, hvort eð er. Það eru ákveðnir
gallar á PostScript (sem dæmi að það er hannað sem prentmál, en ekki til
birtingar á skjá). Einnig þjáir PostScript sama vandamál og SVG: Það er
plaintext, og þarf að senda í gegnum interpreter áður en það er nothæft.
Og það er líka nánast óskiljanlegt á textaformi.
SVG er skiljanlegra. Það er XML. (Skilyrðislausir buzzwordbashers mega
hugsa það sem þeir vilja, það breytir ekki því að XML er ekki *algjört*
sorp.) Það er hannað til birtingar á skjá, og til að sjá fyrir
gagnvirkni á háu stigi. Þeir kostir sem eru við SVG á vefnum eru líka
gildir í gluggakerfi -- svo lengi sem kerfið er rétt útfært.
> Bíddubíddubíddu, hvað ertu að segja hér? Viltu búa til gluggakerfi í
> Flash?
Nei. Eins og ég segi eru lokuð snið ómögulegt mál. Flash er lokað. Að
öðru leyti er *ekkert* sem mælir gegn því að nota Flash sem render
kerfi.
> Ég er eindregið þeirrar skoðunar að á meðan W3C eru að gera góða hluti
> fyrir vefinn, þá sé þeirra dót ekki málið í grafískri rendingu á
> gluggakerfum almennt...
Það þýðir hinsvegar ekki að ómögulegt sé að nota dót frá þeim í annað en
vefinn. SVG er almennt snið fyrir vector grafík. Vector grafík er góð.
Vector grafík er hraðvirk. (Sem útskýrir kosti NeWS, NeXT og Quartz...)
> Smá disclaimer (sem ætti að vera óþarfur): Þetta bréf er *ekki* ætlað
> sem bögg, þetta er ágætis input inn á annars dauðan lista, frekar
> ætlað til að óska eftir nánari skýringum á því sem kemur fram...
Bréfið inniheldur engar upplýsingar, heldur nánast innantómt bull. Núna
er ég farinn að (reyna) að skrifa eitthvað skárra... :)
(P.S. Mér finnst óþægilegt að fá tvö eintök af sama bréfinu - ef ætlunin
er að svara á listann, vinsamlegast stílið bréfið á hann...)
- --
The above should not be construed as the actual opinions of the author,
he routinely writes without thinking. We apologise for the
inconvenience.
-----BEGIN PGP SIGNATURE-----
Version: GnuPG v1.2.1 (GNU/Linux)
iD8DBQE+rpwFfOccJ8fBESIRAkKbAJ9HeAxnYbnw2cNG44C0i+0s/QRRPgCfc2we
XVhHJ3yWVdVOkqEyp8/0u9s=
=+2Lx
-----END PGP SIGNATURE-----