(none) yaxic
/ help / lists / applications / search /
 

Fyrirhyggja - Grafík

From: Herbert Snorrason (
04999@xyz.molar.is)
Date: Tue 29 Apr 2003 - 01:22:38 GMT

  • Next message: Kristofer Sigurdsson: "Re: Fyrirhyggja - Grafík"

    -----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE-----
    Hash: SHA1

    SEE DISCLAIMER AT BOTTOM
    ********************************
    Yaxic er, a.m.k. upphaflega, hugsað sem heilstætt stýrikerfi. Eins og er
    hefur nákvæmlega ekkert verið hugsað um það sem liggur fram undan -
    þegar (og ef) við fáum Ix til að vera nothæft kerfi.

    Hver er ætlunin? Yet Another UNIX® clone? Önnur (enn ein, raunar) BeOS
    eftirherma? Nútímavætt DOS, jafnvel? ;)

    Upphaflega var rætt um grafískt kerfi. Ég *veit* að Ix er hvergi nærri
    því að ráða við textaskel, hvað þá grafískt kerfi á borð við X. En ég
    hef ekki í hyggju að biðja um X. Það sem ég vil gera er í senn einfalt
    og flókið. Einfalt, af því að hugmyndin er einföld, hefur margsinnis
    verið útfærð áður, og sannað sig. Flókið, af því að útfærsla
    hugmyndarinnar er flókin, krefst mikillar þolinmæði, og gríðarlegrar
    skipulagningar.

    Satt að segja laug ég hérna áðan. Ég vil X11. Eða X12, ef það verður
    komið þegar við loks ljúkum við þetta. ;) En ég vil *ekki* XFree86.
    Satt að segja hef ég engan áhuga á núverandi útfærslum á X.
    Ef ég á að vera alveg hreinskilinn vil ég losna við flest sem tengist
    X, fyrir utan netvirknina og þann hafsjó af forritum sem eru nú þegar
    til fyrir þetta gluggakerfi.

    Einhverjir hérna vita kannski að á svipuðum tíma og X var að komast í
    notkun var annað gluggakerfi til hjá Sun. (James nokkur Gosling var
    ábyrgur fyrir því. Önnur atriði á sakaskrá hans telja meðal annars
    upphaflegu útgáfuna af Emacs á Unix og Java. Fyrir kraftaverk er umrætt
    kerfi ekki algjör hryllingur.) Þetta kerfi var, að mati margra langtum
    betra en X. Kerfið gekk undir nafninu NeWS - Network extensible Window
    System. Það bjó yfir helsta kosti X - það var nethæft. Það var einnig
    laust við marga hönnunargalla sem enn plaga X, en hefur að talsverðu
    leyti tekist að laga með viðbótum. Þetta gluggakerfi notaðist við
    PostScript til að lýsa skjánum. Render vélin tók við PostScript
    gögnunum, og sendi útkomuna á vélbúnaðinn.

    Þetta hljómar klikkað. NeWS var hraðvirkara en X. Enn klikkaðra: Quartz,
    aðalrendervél MacOS X notar PDF. Þessi strategía er greinilega ekki eins
    heimsk og hún hljómar.

    Bæði PostScript og PDF eru lokuð snið. Raster form á borð við JPEG, GIF
    og PNG eru ekki inni í myndinni. Þá eru eftir vector snið. NeXT gerði
    sér grein fyrir kostum slíkra kerfa. Þau eru hraðvirk. Það er hægt að
    nota þau á fáránlega háum upplausnum. Það er hægt að fella texta inn í
    þau, beint sem myndir.

    Flash er algengasta vector sniðið. W3C er að ýta öðru af stað. SVG, sem
    er byggt á XML, er W3C Recommendation. Það þýðir að þetta snið verður
    komið út um allt mjög bráðlega.

    Meðal annars hjá okkur.
    *********************
    Núna vill svo til að ég er frekar sybbinn, og neyðist til að mæta í
    skóla í fyrramálið. Ég nenni ekki að klára þetta, ég nenni ekki að geyma
    þetta, og ég nenni alls ekki að þurrka það út og byrja upp á nýtt.
      Vitrænt útskýring (kannski) á morgun.

    [Það er aldrei að vita! Fólk *hefur* horfið!]
    - --
    The above should not be construed as the actual opinions of the author,
    he routinely writes without thinking. We apologise for the inconvenience.
    -----BEGIN PGP SIGNATURE-----
    Version: GnuPG v1.2.1 (GNU/Linux)

    iD8DBQE+rdPefOccJ8fBESIRAly8AJ9jMz3j3Ad+1iPtdMsULrjT/fqOyACfZg6Q
    5GOWLYQ04J2JYkbHQs3O/NA=
    =fDCL
    -----END PGP SIGNATURE-----



  •